Sælt veri fólkið.
Það er svolítið langt síðan ég skrifaði síðast en
ég var á Íslandi staddur frá 18 ágúst til 27 september ef það
skildi hafa farið framhjá eitthverjum.
Það var ímislegt gert í þetta skiptið á Íslandi
en við birjuðum skötuhjúin á að versla okkur ægilegan dísel trukk
af gerðinni Toyota Yaris 1400cc Disel turbo intercooler árg
2005 og er þetta hin mesti kosta gripur.(konubíll en samt
góður held reyndar að maður sé að verða eitthvað soft í þessum
bílamálum Yaris dísel Commmon veit ekki hvernig á að afsaka þetta
nema þetta eru svakalega fínir og eyðslugrannir bílar og því góð
kaup
 
Eftir það var brunað, á Yarisinum, á danska
daga í hólminum á "smá" jamm en þar voru ímsir
meðlimir fjölskyldunnar og vinir samankomnir.
Fór reyndar í hólminn aftur í 5 daga vinnu hjá Sæferðum
en það var mjög skemmtilegt að kíkja aðeins í gömlu vinnuna aftur
og hitta alla.
Við skötuhjúin versluðum síðan eitt stikki
risíbúð í Hafnarfirði og eftir smá umbætur erum við mjög sátt við
hana en þó nokkuð sem stendur til að taka í gegn þegar fram líða
stundir.
samt þægileg og kósý íbúð sem okkur líður vel í en
það skiptir víst öllu máli segja þeir sem eru nægjanlega andlega
innvinklaðir til að skilja í slíku
Við mágarnir og útgerðarfélagar Bjössi og ég
fórum svo í ægilegan flugrúnt en helstu áfangastaðir voru Akureyri
að heimsækja fjölskylduna, Húsavík, Kárahnjúkar og svo yfir og
norðan við vatnajökul á heimleiðinni og var frábært veður alla
leiðina og hlaust því af þessu hin mesta skemmtun. Reyndar var
eitt lítið einbýlishús verslað á Akureyri í leiðinni en eins
og allir ættu að gera sér grein fyrir er alltaf gott að hafa
sér þak yfir höfuðið á sem flestum stöðum enda ömurlegt
að hýrast í tjaldi í válindum veðrum á norðurlandi þó
oftast hafi maður nú fengið inni hjá ættingjum þar í bæ,,,.. en
allur er þó varinn góður
Skotvopna og veiðikorta námskeiðið var lagt að
velli loksins loksins og er ég þar með búinn að skipta út
bessa-leifinu fyrir alvöru byssuleifi
(naut reyndar dyggrar
aðstoðar hennar Kötlu sem tók námskeiðið með mér og náði hún með
undraverðum árangri að draga mig í gegnum þetta þó ég væri erfiður
til að mæta á réttum tíma og hefði litla sem enga þekkingu eða
reynslu á námsefninu) Katla, hefði ekki getað þetta án
þín
Þessar breitingar virtust samt ekki hafa neitt
sérstaklega góð áhrif á gæsaveiðiárangurinn en hann var reyndur
á 4-5 daga skotveiðireisu með Jóni M og
Þorra á austfjörðum nokkru seinna sem gengu, að okkur
fannst meira en lítið brösulega en þó höfðust eitthvað um
40 fuglar upp úr krafsinu á endanum fyrir utan máfa, hrafna, minnka
og annara snýkjudýra sem allnokkrir þurftu að
bíða lægri hlut fyrir okkur félögunum.
Meðalsvefntíminn í ferðinni per sólahring var reyndar undir 4 tímum
og því allnokkur þreyta kominn í mannskapinn eftir túrinn en þessu
var drengilega fagnað á miklu villibráðarkveldi nokkrum dögum
seinna en þar var Árni Björn félagi minn rassskelltur í
sósugerð
allavega að mínu mati....,
Einkasnekkjan okkar Bjössa var einnig partur af
dægrastyttingu þessa sumarleifis en við fórum nokkrir
félagar á svartfugl og einnig voru nokkrir
bryggjurúntar og skakveiðiferðir farnar.
Fór sem Caddý á gólfmót skýrr
með tölfunördinu og kylfingnum Jóni frænda en þetta var nú
ekki neitt bindindis mót og held ég að Jóni hafi áskotnast sá
vafasami heiður í lok móts að hampa fyllsta kylfusveininum..... eða
það mynnir mig allavega

Mótorhjólaprófið var síðan klárað svona síðustu
dagana og var það frábær skemmtun og ábyggilegt að maður á eftir að
reyna að koma því sporti meira inn í Dægrastyttingar pakkann á
komandi árum
Gríðarlegt stuð....
Rólegt og gott sumarleifi á klakanum á enda og
stórskrítið og erfitt að fara um borð aftur án Þórunnar en þetta er
nú allt aðeins að batna með því að hitta gömlu félagana
um borð.......Samt skrítið
Síðan ég kom út hefur verið frekar rólegt að gera
í vinnunni og var tveggja daga fríi helgarinnar eitt í að rúnta um
frönsku revieruna á litlum mótorhjólum sem við félagarnir Guðsteinn
og ég leigðum hérna og var það allger snilld í alla staði.

Sjáumst í næsta
stríði,.,.,.,.,.,.,.,.
Kv
Elís Pétur